> Aðalskipulag Sveitarfélagsins Skagastrandar 2010-2022
Sveitarstjórn Skagastrandar samþykkti á fundi sínum 10. maí 2010 að auglýsa til kynningar tillögu að aðalskipulagi Skagastrandar fyrir tímabilið 2010-2022, samkv. 1. málsgrein 18. gr. Skipulags og byggingarlaga nr 73/1997 með síðari breytingum.
Skipulagsuppdrættir, greinargerð og umhverfisskýrsla munu vera til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar, Túnbraut 1-3 frá 25. maí til 22. júní 2010. Ennfremur er tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík. og á heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagastrond.is þar sem jafnfram er skýrsla vegna fornleifaskráningar.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Þeim skal skila til skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar fyrir 7. júlí 2010 og skulu vera skriflegar.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.
Fyrir hönd sveitarstjórnar
Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri
- Aðalskipulag 2010-2022 og Staðardagskrá 21
- Aðalskipulag, kort
- Aðalskipulag, verndarsvæði, kort
- Aðalskipulag, samgöngur, kort
- Fornleifaskráning
|