Kúreki norðursins.
Hann hefur verið nefndur kóngurinn, kúrekinn eða kúreki norðursins fyrst og fremst vegna framlags síns til kántrýtónlistar á Íslandi. Hallbjörn hefur víða komið við á lífsleið sinni, en hann er fæddur 5. júní 1935. Frægð hans tengist þó tónlistinni og útvarpsmennsku.
Hallbjörn hefur gefið út margar plötur og eru þær allar löngu uppseldar og fágætir minjagripir. Edda miðlun og útgáfa gaf nú fyrir nokkrum dögum út geisladisk sem nefnist Kúrekinn – til heiðurs Hallbirni.
Á henni leika landskunnir tónlistarmenn lög Hallbjörns í eigin útsetningum
Hallbjörn á stóran þátt í að kynna Skagaströnd fyrir öðrum landsmönnum og hann var sem kunnugt er upphafsmaður Kántrýhátíða. Þekkt er kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar kvikmyndagerðarmanns sem hann gerði um fyrstu Kántrýhátíðina sem haldin var 1984.
Hallbjörn rak fyrr á árum verslun í gömlu húsi sem stóð þar sem Kántrýbær stendur núna. Hann lokaði versluninni og opnaði veitingastað í húsinu og kallaði Kántrýbæ. Það hús brann árið 1997. Með dyggum stuðningi landsmanna auðnaðist Hallbirni að snúa vörn í sókn og nýr Kántríbær var opnaður 26. júní 1998.
Nýja húsið er bjálkahús og er auðþekkt af útliti sínu. Frá upphafi hefur Kántrýbær kappkostað að bjóða upp á almenna rétti eins og steikur og fiskrétti og smáréttis s.s. hamborgara og pizzur.
Nafn kúrekans er ekki síður þekkt fyrir Útvarp Kántrýbæ sem hann stofnaði 14. nóvember 1992. Stöðin næst frá Holtavörðuheiði og langleiðina til Akureyrar.
Í Húnavatnssýslu er útsendingartíðnin 96,7 og í Skagafirði 102,1
Kántrýdanshópurinn Hófarnir - Gullverðlaunahafar í línudönsum.