íbúafundur um aðalskipulag

ÍBÚAFUNDUR  

um aðalskipulag fyrir sveitarfélagið Skagaströnd

verður haldinn í félagsheimilinu Fellsborg

miðvikudagskvöldið 7. maí n.k. kl 19:30

 

Hafin er vinna við gerð aðalskipulags fyrir sveitarfélagið Skagaströnd. Í þeim tilgangi að gefa íbúum og  hagsmunaaðilum kost á að koma á framfæri ábendingum í upphafi vinnunar er boðað til almenns íbúafundar.

 

Samið hefur verið við Landmótun sf. um ráðgjöf um aðalskipulagsgerðina og mun Yngvi Þór Loftson ráðgjafi mæta á fundinn, kynna verkefnið og m.a. greina frá aðgangi almennings að aðalskipulagsgerðinni.

 

Aðalskipulag nær til alls land innan staðarmarka sveitarfélagsins og er stefna sveitarstjórnar um:

·        Atvinnu- og íbúamál

·        Landnotkun og þróun byggðar

·        Samgöngur og veitur

·        Umhverfismál

·        Þéttleika byggðar og byggðamynstur

·        Takmarkanir á landnotkun

Stefnumörkun aðalskipulagsins skal ná til a.m.k. 12 ára tímabils.

 

Íbúar og aðrir hagsmunaaðilar eru hvattir til að mæta og hafa þannig áhrif á það samfélag sem þeir búa í.

 

Magnús B. Jónsson

sveitarstjóri