Mjög áhugavert námskeið var haldið í gær fyrir alla kennara grunnskóla Húnavatnssýslna og grunnskóla Borðeyrar í upphafi skólastarfs.
Meginmarkmið námskeiðsins var að vekja kennara til umhugsunar um hlutverk sitt og hvaða aðferðir gagnist best til þess að ná góðum árangri í starfi. Fjallað var um hlutverk kennarans sem stjórnanda/leiðtoga og rætt um hvað einkennir góða kennara. Kynntar voru aðferðir sem gagnast kennurum í samskiptum sínum við nemendur og í bekkjarstjórnun. Gefin voru dæmi um leiðir sem kennarinn geta farið til þess að draga úr neikvæðri hegðun nemenda og byggja upp jákvæðan skólabrag.
Námskeiðið, sem var á vegum Fræðsluskrifstofunnar og haldið í félagsheimilinu Fellsborg á Skagaströnd, sóttu 70 kennarar
Kennarar námskeiðsins voru: Helgi Arnarson skólastjóri, Hjördís Jónsdóttir kennari og Margrét Karlsdóttir kennari.
Þátttakendur lýstu mikilli ánægju með daginn.
Myndir: Þátttakendur og Leiðbeinendur.