Lausar íbúðir á Ægisgrund 2-8
Lausar eru til úthlutunar 2 íbúðir á Ægisgrund 2-8 á Skagaströnd. Rétt til umsókna eiga þeir sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
a) Umsækjendur um íbúðir aldraðra skulu hafa náð 67 ára aldri
b) Umsækjandi skal hafa átt lögheimili í einu þeirra sveitarfélaga sem aðild eiga að Byggðasamlagi um Félags- og skólaþjónustu A-Hún, Blönduósi, Húnavatnshreppi, Sveitarfélaginu Skagaströnd eða Skagabyggð, í lágmark síðustu 6 mánuðina fyrir umsókn.
c) Umsækjandi þarf að vera fær um að búa í sjálfstæðri búsetu í leiguíbúð aldraðra.
Sótt er um á sérstökum eyðublöðum sem aðgengileg eru á vef Félags- og skólaþjónustunnar, www.felahun.is og á skrifstofu.
Nánari upplýsingar og aðstoð við útfyllingu umsókna veitir Ásdís Ýr Arnardóttir, félagsmálstjóri, í síma 863-5013/452-7101.
Umsóknarfrestur til til 2. apríl 2019