Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979) frá Háagerði í heyskap á túninu við Háagerði. Á myndinni er Kristján að ýta saman heyi með tveimur hestum eftir að hafa rakað heyinu saman í garða. Spýta var bundin aftan í hestana og síðan var staðið á spýtunni til að halda henni niðri. Hestarnir drógu svo spýtuna þar til næg hrúga af heyi var komin framan við hana. Þá var spýtunni lyft yfir hrúguna og haldið áfram framan við hana. Síðan var heyinu úr hrúgunum hlaðið upp í sæti/sátur eins og sést fyrir aftan Kristján. Seinna var svo heyinu ekið heim í hlöðu eða sett í fúlgu heim við fjárhús eða fjós. Hlutverk hesta í sveitum landsins hefur breytst mikið frá þessum tíma úr því að vera þarfasti þjónninn og helsta vinnutæki bænda yfir í það að vera fyrst og fremst skemmtigripur og skrautfjöður eiganda síns. |