Á þorrablóti |
Myndin var tekin á þorrablóti í Fellsborg 2. febrúar 2013. Á henni er verið að syngja um hóp kvenna sem tók upp á því að stunda sjósund, oftar en ekki út við Sandlæk. Þar er dýpi ekki mikið þannig að hætta á drukknun er hverfandi. Aftur á móti vildi sandur festast milli tánna á konunum sem þær skoluðu gjarnan af sér í sundlauginni þegar þær fóru í heita pottinn þar til að fá aftur hita í kroppinn. Klæðnaður söngkvennanna er því við hæfi en þær eru, frá vinstri: María Ösp Ómarsdóttir, Lena Rut Jónsdóttir, Þorgerður Þóra Hlynsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir. |