Óskiljanlegar hraðahindranir á Skagaströnd

Lögreglubíll og fólksbíll eru óökufærir eftir árekstur sem varð á Strandgötu á Skagaströnd í morgun. Tildrögin voru þau að bílarnir mættust við hraðahindrun en hún er tvískipt. Ökumaður Toyotu fólksbíls ætlaði að komast hjá því að aka yfir hraðahindranirnar og beygði yfir á vinstri vegarhelming, á milli þeirra. Ekki tókst honum betur til en svo að hann lenti beint framan á lögreglubíl sem þarna var, því sem næst kyrrstæður.

„Það er alveg óskiljanlegt að búa til hraðahindrun sem gefur kost á því að ökumenn geti komist hjá þeim með því að aka yfir á rangan vegarhelming,“ segir Vilhjálmur Stefánsson, lögreglumaður á Blönduósi, en hann var ökumaður lögreglubílsins.

„Hvers vegna að hafa hraðahindrun ef ekki þarf að aka á hana? Meira að segja bílar sem komu þarna að eftir áreksturinn sveigðu á milli hraðahindrananna fyrir framan augun á okkur,“ segir Vilhjálmur og bætir því við að lögreglan ætli að spyrjast fyrir um tilganginn með þessu hjá sveitarstjóra Skagastrandar.

Skemmdir á lögreglubílnum voru ekki miklar en nægar til að hann var óökufær, líklega er vatnskassinn ónýtur.