Bæjarhátíðin
Skagginn var haldin dagana 14.-16. ágúst 2015. Markmið hátíðarinnar var að
skapa skemmtilega stemningu á Skagaströnd þar sem íbúar og félagasamtök tækju
höndum saman um að eiga góðar stundir og gleðidaga. Tómstunda- og menningarmálanefnd
sem stóð fyrir hátíðinni og sá um skipulag hennar hefur farið yfir hvernig til
tókst og telur að með góðum stuðningi allra þátttakenda, íbúa, félagasamtaka,
fyrirtækja og stuðningsaðila hafi hátíðin tekist vel og staðið undir væntingum.
Nefndin kaus að
kalla alla þessa aðila „vini Skaggans“ og færir þeim öllum bestu þakkir fyrir
þeirra framlag. Nefndin þakkar sömuleiðis öllum þeim jákvæðu og góðu gestum sem
sóttu hátíðina heim og lögðu einnig sitt af mörkum til að gera Skaggann að
þeirri notalegu og skemmtilegu hátíð sem raun bar vitni.
Tómstunda- og
menningarmálanefnd Skagastrandar