Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna kosninga um sameiningu sveitarfélaganna Blönduósbæjar, Skagabyggðar, Sveitarfélagsins Skagastrandar og Húnavatnshrepps laugardaginn 5. júní 2021
Þann 12. apríl sl. hófst utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna kosninga um sameiningu sveitarfélaganna Blönduósbæjar, Skagabyggðar, Sveitarfélagsins Skagastrandar og Húnavatnshrepps.
Greiða má atkvæði utan kjörfundar á skrifstofum embættisins sem hér segir:
Á öðrum stöðum fer utankjörfundaratkvæðagreiðsla fram sem hér segir í samráði við hreppsstjóra:
Miðvikudaginn 2. júní nk. verður opið til kl. 19:00 í aðalskrifstofunni á Blönduósi.
Ósk um atkvæðagreiðslu í heimahúsi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar skal hafa borist sýslumanni á sérstöku eyðublaði eigi síðar en þriðjudaginn 1. júní 2021 kl. 16:00.
Kosið verður á HSN Blönduósi og Dvalarheimilinu Sæborg á Skagströnd í vikunni fyrir kjördag, nánar auglýst síðar.
Kjósendur skulu framvísa persónuskilríkjum við kosninguna.
Það skal tekið sérstaklega fram að hægt er að kjósa utan kjörfundar hjá öllum sýslumannsembættum landsins.
Blönduósi, 16. apríl 2021
Birna Ágústsdóttir
sýslumaður