Kaffi-og menningarhúsið Bjarmanes á Skagaströnd er fallegt steinhús, byggt 1913 en var allt endurbyggt 2004,og hefur þann einstaka anda sem einkennir mörg gömul hús. Það stendur miðsvæðis með góðu útsýni yfir höfnina og Húnaflóann.
Félagsheimilið Fellsborg var byggt árið 1965. Í húsinu eru 2 misstórir salir, sem nýttir hafa verið til skemmtanahalds, leiksýninga, ættarmóta, fatamarkaða og fl. Bókasafn Sveitarfélagsins er á neðri hæð sem og félagsstarf eldri borgara. Kvenfélagið Eining og UMF Fram hafa þar einnig aðstöðu. Við húsið er íþróttavöllur staðarins og einnig ágæt aðstaða fyrir tjöld og tjaldvagna sem hefur einkum verið nýtt í tengslum við ættarmót sem haldin eru í húsinu.
Tjaldsvæðið í
Höfðahólum er á skjólsælum og rólegum stað efst í byggðinni og horfir á
móti sólu. Í miðju svæðisins er gamall bæjarhóll þar sem bærinn Höfðahólar
stóðu. Svæðið er í fallegu umhverfi og nýtur skjóls til norðurs og austurs af
lágum klettahólum sem kallaðir eru Hólaberg.
Runnar skipta svæðinu upp í nokkra reiti sem skapa þægileg umhverfi fyrir
tjöld, húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagna. Rafmagnstenglar eru á
nokkrum stöðum. Á svæðinu er góð aðstaða fyrir börn í spennandi náttúrlegu
umhverfi. Í þjónustuhúsinu eru sturta, vatnssalerni, þvottavél og aðstaða til
uppþvotta.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar
fyrir 20. apríl 2017 þar sem m.a. komi fram hugmyndir umsækjanda um rekstur hverrar einingar eða allra saman. Áður auglýstur umsóknarfestur um Bjarmanes er framlengdur til 20. apríl.
Umsóknum má einnig skila rafrænt á netfangið magnus@skagastrond.is
Fyrir hönd sveitarstjórnar,
Í mars 2017.
Sveitarstjóri