Félagsstarf 60+ hefst að nýju í Fellsborg

Allir íbúar sveitarfélagsins 60 ára og eldri eru velkomnir til að sinna ýmsum hannyrðum og spila eða bara kíkja í kaffisopa, spjall og samveru. Íbúar Húnabyggðar eru einnig velkomnir.

Starfsemin fer fram í Fellsborg og verður opin frá kl. 14:00 – 17:00 mánudaga og fimmtudaga í vetur. 

Gengið er inn að sunnanverðu.

Vonumst til að sjá sem flesta eftir langt frí. Endilega látið orðið berast.