Þann 24.október, á fyrsta vetrardag og kvennafrídaginn, verða haldnir tónleikar í Menningarhúsinu Miðgarði í Skagafirði kl. 20.30. Þar mun 10 manna hljómsveit stíga á svið og fara með áhorfendur í einskonar heimsreisu. Þannig verða flutt 12 lög frá jafnmörgum löndum, lög sem eru samin af konum eða hafa verið sungin af konum.
Löndin sem um ræðir eru Spánn, Ísrael, Rúmenía, Grænhöfðaeyjar, Kúba, Mexíkó, Chile, Argentína, Brasilía, Indland, Suður-Afríka og Kenía. Multi Musica eru: Ásdís Guðmundsdóttir, söngur og ásláttur Sorin Lazar, gítar og flauta Jóhann Friðriksson, trommur Rögnvaldur Valbergsson, hljómborð,gítar og harmonikka Sigurður Björnsson, bassi Sveinn Sigurbjörnsson, bongó og trompet Íris Baldvinsdóttir, bakraddir og ásláttur Jóhanna Marín Óskarsdóttir, bakraddir, strengir og ásláttur Ólöf Ólafsdóttir, bakraddir og ásláttur Þórunn Rögnvaldsdóttir, bakraddir og ásláttur
Tónlistarstjóri er Sorin Lazar en hópurinn hefur útsett lögin í sameiningu.
Kynnir á tónleikunum er Bryndís Ásmundsdóttir, leikkona.
Á milli laga verður ýmiskonar fróðleikur um viðkomandi lönd.
Samstarfsaðilar í verkefninu eru Skagafjarðardeild RKÍ en í hléinu verða gestum boðnar veitingar sem eru útbúnar og framreiddar af fólki sem er af erlendu bergi brotið og býr í Skagafirði.
Sviðið verður skreytt munum frá Afríku og S- Ameríku og því sannkölluð alþjóðastemning í salnum. Borð verða dekkuð í sal þannig að fólk getur fengið sér kaffi eða drykki á meðan á tónleikunum stendur en vínveitingar verða á tónleikunum.
UNIFEM og Félag kvenna af erlendum uppruna munu kynna samtök sín í hléinu. Tónlistarskóli Skagafjarðar styrkir einnig verkefnið en hljómsveitin hefur haft þar æfingaaðstöðu. Menningarráð Norðurlands vestra, Sparisjóður Skagafjarðar og Ólafshús hafa styrkt verkefnið myndarlega.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og er miðaverð kr. 2.000. Ef pantaðir eru 10 miðar eða fleiri þá kostar miðinn 1.800 kr og því tilvalið fyrir hópa og vinnustaði að drífa sig.
Miðapantanir og nánari upplýsingar eru í síma 899-9845 Við lofum ykkur hlýlegri og skemmtilegri tónlistarveislu í lok sumars og byrjun vetrar!!