Í gær var lokið við hluta af uppsetningu á nýjum flotbryggjum fyrir minni báta hér á Skagaströnd.
Um uppsetningu sá Kristján Óli Hjaltason eigandi Króla ehf. ásamt fríðum flokki manna.
Frágangi vegna framkvæmda er ekki lokið og hafa bryggjurnar því ekki verið teknar í notkun, en formlega opnun verður tilkynnt síðar.
Sveitarstjóri