Fræðslustjóri - starf laust til umsóknar

Starf fræðslustjóra í Austur Húnavatnssýslu er laust til umsóknar.

Um er að ræða 100% starf hjá Félags- og skólaþjónustu A-Hún sem er byggðasamlag sveitarfélaganna Húnabyggðar, Skagabyggðar og Skagastrandar. Skagabyggð sameinast Húnabyggð 1. ágúst n.k.

Undir starfið heyra leik- og grunnskólar í viðkomandi sveitarfélögum.

Um er að ræða spennandi starf í síbreytilegu skólasamfélagi sem er í mikilli þróun.

Helstu verkefni:

  • Ráðgjöf og stuðningur við skólasamfélagið
  • Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur skóla í ýmsum þáttum sem snúa að starfi skólanna
  • Skipulag og eftirlit með sérfræðiþjónustu við skóla
  • Innleiðing á lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna
  • Umsjón með endurmenntun og þróunarstarfi í skólasamfélaginu
  • Eftirlit með skólastarfi í sveitarfélögum byggðasamlagsins
  • Þverfagleg vinna að málefnum skólabarna
  • Stefnumótun í málaflokkum sem falla undir starfssvið fræðslustjóra
  • Samskipti við aðila utan og innan sveitarfélaganna í fræðslumálum

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði, framhaldsnám er kostur
  • Góð þekking á sviði leik- og grunnskóla, leyfisbréf til kennslu er kostur
  • Leyfi til notkunar á skimunar og/eða matstækjum sem nýtast í starfi er kostur
  • Reynsla af störfum innan skólakerfisins nauðsynleg
  • Skipulagshæfileikar, ríkulegur þjónustuvilji og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta bæði í ræðu og riti
  • Reynsla af stjórnun er æskileg

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Nánari upplýsingar um starfið veita:

Þórdís Hauksdóttir, fræðslustjóri, sími 661-5812. Netfang: thordis@felahun.is

Ólafur Þór Ólafsson, starfandi sveitarstjóri á Skagaströnd og framkvæmdastjóri Félags- og skólaþjónustu A-Hún, sími 849 2000. Netfang: sveitarstjori@skagastrond.is

Ásdís Ýr Arnardóttir, stjórnarformaður Félags- og skólaþjónustu A-Hún, sími 824-7567

Umsókn um starfið ásamt fylgigögnum skal senda rafrænt í tölvupósti á sveitarstjori@skagastrond.is eða í gegnum atvinnuleitarmiðilinn Alfreð.

Með umsókn skal fylgja ferilskrá þar sem fram kemur hæfni viðkomandi til starfans ásamt yfirliti yfir nám og störf er nýtast í starfi að mati umsækjenda.

Umsóknarfrestur er til 1. ágúst 2024 og er stefnt að því að ráða í stöðuna frá 1. september 2024. Ráðning í starfið er ótímabundin.