Framlengdur umsóknarfrestur vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2007/2008
18.08.2008
|
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur ákveðið að umsóknarfrestur um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2007/2008 skuli framlengdur fyrir neðangreind byggðarlög. Athuga ber að umsóknarfrestur er til og með 1. september 2008, og vakin er athygli á að áður sendar umsóknir gilda áfram. Sveitarfélagið Árborg (Eyrarbakki) Sveitarfélagið Ölfus (Þorlákshöfn) Sveitarfélagið Gerðahreppur (Garður) Snæfellsbær (Rif og Ólafsvík) Grundarfjarðarbær (Grundarfjörður) Stykkishólmsbær (Stykkishólmur) Sveitarfélagið Vesturbyggð (Brjánslækur, Patreksfjörður, Bíldudalur) Tálknafjarðarhreppur Sveitarfélagið Bolungarvík Sveitarfélagið Ísafjarðarðarbær (Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Hnífsdalur, Ísafjörður) Árneshreppur (Norðurfjörður) Kaldrananeshreppur (Drangsnes) Húnaþing vestra (Hvammstangi) Blönduósbær (Blönduós) Sveitarfélagið Höfðahreppur (Skagaströnd) Sveitarfélagið Fjallabyggð (Siglufjörður, Ólafsfjörður) Grímseyjarhreppur (Grímsey) Dalvíkurbyggð (Hauganes og Árskógssandur) Akureyrarbær (Hrísey) Langanesbyggð (Þórshöfn og Bakkafjörður) Borgarfjarðarhreppur (Borgarfjörður eystri) Seyðisfjörður, Fjarðabyggð (Fáskrúðsfjörður og Stöðvarfjörður) Sveitarfélagið Djúpavogshreppur Umsóknum skal skilað til Fiskistofu. |
|