Fyrri haustgöngur fara fram föstudaginn 10. september, seinni haustgöngur fara fram föstudaginn 17. september og eftirleitir verða föstudaginn 24. september.
Gangnaforingi er Magnús Guðmannsson.
Réttarstjóri í báðum réttum er Einar Haukur Arason.
Farið er fram Hrafndal og fram í Ármót, vestur Brandaskarð með hreppagirðingu að norðan. Spákonufellsborg að sunnanverðu að Hrafná að Fellsrétt. Undanskilin er skógræktargirðing.
Í Borgina leggi eftirtaldir til menn:
Fyrri göngur Seinni göngur
Jón Heiðar Jónsson 3 2
Sigþór Hallgrímsson 3 2
Magnús Guðmannsson 1 1
Einar Haukur Arason 1
Bryndís Valbjarnardóttir 1
Guðjón Ingimarsson 1
Rúnar Jósefsson 2 2
Í eftirleit fara fjórir menn. Þær annast Jón Heiðar Jónsson.
Fólk er hvatt til að gæta að persónulegum sóttvörnum og kynna sér gildandi reglur inni á covid.is
Með vísan til 20. greinar fjallskilareglugerðar A-Hún.: „Hafi búfjáreigandi engan hæfan mann til fjallskila og getur eigi útvegað hann, skal hann tilkynna hreppsnefnd eða fjallskilastjóra það skriflega fjórum dögum áður en fjallskilin eiga að vinnast, en þessir aðilar útvega mann eða annað sem vantar, svo sem hesta eða fæði, og borgar þá búfjáreigandi allan kostnað, sem af fjallskilum leiðir, án tillits til mats á þeim“.
Að öðru leyti en hér greinir fer um skyldur og réttindi manna eftir fjallskilasamþykkt fyrir Austur-Húnavatnssýslu nr. 299/2009.
Fjallskilanefnd Skagabyggðar, Skagabúð 1. september 2021.