Gjöf til Íþróttahússins á Skagaströnd

Minningarsjóðurinn um hjónin frá Garði og Vindhæli gaf Íþróttahúsinu á Skagaströnd fjögur Unicorn pílukastsett af nýjustu og bestu gerð. Með gjöfinni fylgja fjórar spjaldtölvur sem sýna rafrænan útreikning og geta spilarar því strax séð stigagjöf sína sem og mótspilarar. Pílukast hefur verið að ryðja sér til rúms á síðustu misserum og nýtur mikilla vinsælda þeirra sem það stunda. Það hefur sýnt sig að allir aldurshópar, bæði ungir og gamlir, geta tekið þátt í pílukasti sér til ánægju og gleði.

Íþróttahúsið og Sveitarfélagið Skagaströnd þakkar minningarsjóðnum kærlega fyrir glæsilega gjöf. 

Á morgun miðvikudag frá klukkan 15:00 til 18:00 verður hægt að koma og prófa aðstöðuna og fá leiðbeiningar á búnaðinn.