Gjöf til landsmanna bíður þín

Bókin Fjallkonan, þú ert móðir vor kær, bíður þín að Túnbraut 1-3 Skagaströnd

Íslenska lýðveldið var stofnað á Þingvöllum þann 17. júní 1944 og fagnar því 80 ára afmæli á árinu.

Af því tilefni gefur forsætisráðuneytið, í samvinnu við Forlagið út bókina Fjallkonan. Þú ert móðir vor kær, sem verður gjöf til landsmanna og dreift um allt land fyrir 17. júní.  Fjallkonan er þjóðartákn og í bókinni er kafað ofan í sögu hennar og tilurð sem þjóðartákns og ávörpin sem flutt hafa verið af íslenskri fjallkonu allt frá árinu 1947, ásamt úrvali þjóðhátíðarljóða.
Í bókinni eru þýðingar m.a. á ensku og pólsku.