Ágætu Skagstrendingar, ég óska ykkur og okkur öllum til hamingju með það að fá tækifæri til að nýta kosningaréttinn þann 31. maí næstkomandi. Ég býð mig fram til áframhaldandi vinnu í ykkar þágu næsta kjörtímabil enda hafa síðastliðin átta ár verið afar lærdómsrík og í flestum tilfellum skemmtileg. Ég tel afar mikilvægt að innan sveitarstjórna sé fólk sem hefur öðlast reynslu og þekkingu á sveitarstjórnarmálum. Það segi ég fyrst og fremst vegna þess að mér hefur lærst að oft eru mál ekki eins einföld og sjálfsögð eins og þau virðast við fyrstu sýn, því jafnvel í litlu sveitarfélagi eins og okkar þarf stjórnsýslan að vera hin sama og í stærri samfélögum. Flestir sem hafa starfað að sveitarstjórnarmálum eru sammála um að það taki að minnsta kosti eitt kjörtímabil að komast inn í hvernig stjórnsýslan virkar og um hvað verkefni og skyldur sveitarfélaga í raun snúast. Það er auðvitað jafnframt mikilvægt að í sveitastjórnum sé um einhverja endurnýjun að ræða og ekki síður að til starfa veljist jákvætt, víðsýnt og samfélagslega sinnað fólk með fjölbreytta reynslu úr atvinnu- og félagsmálum.
Ég tel að með því að veita Skagastrandarlistanum brautargengi í komandi kosningum sé verið að velja fólk í sveitarstjórn sem hefur einmitt þessa eiginleika. Enda má sannarlega halda því fram að þið, kjósendur á Skagaströnd, hafið stillt upp í efstu fimm sæti listans. Við val á listann var leitast við að nota eins opið og lýðræðislegt ferli og mögulegt var. Niðurstaðan var sú að rúmlega 40% af kosningabæru fólki á Skagaströnd tók þátt í uppstillingu listans. Öllum stóð til boða að bjóða sig fram, allir höfðu rétt til að kjósa og allir höfðu tækifæri til þess að hafa áhrif á hvernig staðið var að kosningunni. Allt var þetta framkvæmt á þremur opnum borgarafundum. Þið svöruðuð kallinu og sýnduð að þið hafið áhuga á samfélaginu okkar enda full ástæða til.
Fólkið á Skagastrandarlistanum vinnur nú að því að koma stefnumálum sínum á framfæri. Okkur finnst að þið eigið að eiga kost á því að hlýða á málflutning okkar. Við höfum því formlega farið þess á leit við oddvitaefni mótframboðsins að haldinn verði sameiginlegur framboðsfundur þar sem bæði framboðin kynna sín mál og ykkur gefst kærkomið tækifæri að leggja fram fyrirspurnir og fá svör við spurningum ykkar.
Hlakka til að eiga við ykkur orðastað
xHalldór Gunnar Ólafsson