Kynningarfundur vegna stofnunar framhaldsdeildar (dreifnáms) í Austur Húnavatnssýslu fyrir nemendur í elstu bekkjum grunnskóla og foreldra/forráðamenn þeirra
Á morgun 6. mars verður boðið til kynningar- og íbúafundar vegna fyrirhugaðs framhaldsnáms (dreifnáms) í heimahéraði.
Almennur borgarafundur um dreifnámið verður haldinn kl. 20:00 í Fellsborg Skagaströnd 6. mars og eru allir íbúar hjartanlega velkomnir en foreldrar elstu nemenda grunnskólans eru sérstaklega hvattir til að mæta til að kynna sér þessa leið við byrjun framhaldsnáms.
Á fundunum mun Þorkell Þorsteinsson, aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, fara ítarlega yfir starfsemi deildarinnar. Rakel Runólfsdóttir umsjónarmaður dreifnáms FNV á Hvammstanga og nemendur þaðan kynna hvernig til hefur tekist með uppbyggingu dreifnámsins á Hvammstanga. Fulltrúar sveitarfélaga í A-Hún. munu skýra frá undirbúningi heima í héraði. Auk kynninganna verður tekið við fyrirspurnum frá fundargestum.
Með von um góða mætingu!
Undirbúningsnefnd