Sjómannadagur 1943 eða 1944
Löng hefð er fyrir að halda sjómannadaginn hátíðlegan á Skagaströnd fyrsta sunnudag í júni eða, eins og nú er gert, á laugardeginum fyrir sjómannadag. Þá er farið í ýmsa leiki sem gjarnan byggjast á því að einhver konar þrautir eru lagðar fyrir þátttakendurna í þeim. Þátttakendur eru yfirleitt valdir úr hópi sjómanna eða einhverra þeirra sem gegna opinberum stöðum á Skagaströnd. Ávallt eru hátíðahöld sjómannadagsins fjölsótt, sama hvernig veður er. Þessi myndin var tekin á sjómannadaginn 1943 eða 44, eftir boðhlaupskeppni þar sem þátttakendur urður að hlaupa í fullum sjóklæðum. Frá vinstri: Ólafur Ásgeirsson (d.27.12.1995), Ingvar Jónsson (d.29.7.1978), Guðmundur Karlsson (d.28.7.2001), Björgvin Jónsson (d.4.5.1992), Guðmundur Jóhannesson (d.14.7.2018), Kristófer Árnason (d.10.5.2000), Gísli Jóhannesson (d.?), Hallgrímur Kristmundsson (d.8.10.1998), Snorri Gíslason (d.29.5.1994), Þórarinn Jónsson (d.14.6.1963), Skafti Björnsson (d.13.10.2014) og Jens Jónsson (d.?). Myndin er úr safni Elísabetar G. Berndsen.