Á dögunum efndum við til ljósmyndasamkeppni þar sem leikskólabörn og 1.-4. bekkur í grunnskólanum voru hvött til þess leita að fyrstu lóunni á Skagaströnd þetta vorið!
Það gekk heldur betur vel og lóan er mætt í allri sinni dýrð!
Fyrsta myndin var tekin af honum Elís Valtýssyni þann 8. apríl sl. kl 14:50. Hann Elís eða Elli eins og hann er kallaður er í 3. bekk í Höfðaskóla.
Önnur myndin kom svo frá henni Hafdísi Hrefnu Birgisdóttur en hún er tekin þann 8. apríl sl. kl. 16:20. Hafdís Hrefna er 5 ára Skagstrendingur og nemandi í leikskólanum Barnabóli.
Krakkarnir gerðu sér lítið fyrir og sýndu fínu myndirnar sínar í spjalli við fréttamenn frá RÚV sem kíktu til okkar í dag og bíðum við spennt eftir innslaginu sem sýnt verður í fréttum í næstu viku.
Foreldrafélög skólanna gáfu krökkunum bækur í verðlaun. Elís fékk bókina Fuglar á Fróni sem er vísnabók um 24 fuglategundir sem finna má á Íslandi. Hún Hafdís Hrefna fékk bókina Fagurt galaði fuglinn sá sem er um íslenska fugla og þeirra fagra kvak en hægt er að hlusta á söng fuglanna við lestur bókarinnar. Óskum við krökkunum innilega til hamingju og þökkum þeim kærlega fyrir þátttökuna.
Nú styttist í sumarið!
Sveitarstjóri