Á sjómannadeginum 1964 var sýnd notkun fluglínutækja við björgun úr strönduðu skipi. Báturinn á myndinni er Vísir Hu 10, en hann var ekki strandaður heldur bara lagt út á höfninni. Maðurinn í stólnum í sjónum, sem verið er að draga í land með tildráttartauginni, er óþekktur. Tilkoma fluglínutækja var bylting í björgunarmálum af strönduðum skipum við Ísland og notkun þeirra hefur bjargað hundruðum mannslífa.
Ljósmyndasafn Skagastrandar