Útbæingar |
|
Þessir krakkar voru öll alin upp í útbænum - undir Höfðanum. Frá vinstri: Finnur Kristinsson úr Héðinshöfða, Unnur Gunnarsdóttir, sem átti heima á neðri hæðinni í Stórholti er í vagninum, Ólafur Bernódusson sem átti heima á efri hæðinni í Stórholti og Eygló Gunnarsdóttir systir Unnar. Myndin var tekin um 1960 á blettinum framan við Stórholt. Kárastaðir, sem nú eru horfnir og Höfðabrekka í baksýn. Stórholt er Bankastræti 3, Kárastaðir voru Bankastræti 5, en Höfðabrekka er Bankastræti 10. |