Myndin er tekin af systkinum í 70 ára afmæli Kára Kristjánssonar 5. desember 1984. Standandi frá vinstri: Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989), afmælisbarnið Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) og Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001). Fyrir framan þá situr systir þeirra, Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993). Litla stúlkan til hægri er Erla María Lárusdóttir sem er langömmubarn Láru. Myndin var tekin heima á Kárastöðum (Bankastræti 5), sem nú eru horfnir, en þar bjuggju þeir Kári og Sigurbjörn saman ásamt ráðskonunni Jónínu Valdimarsdóttur. |