Sumarið 1991 heimsóttu leikskólakrakkarnir af Barnabóli hrossabóndann Gunnar Sveinsson. Á þessari mynd eru komnar á bak þær Jenný Lind Sigurjónsdóttir aftast, Anna María Magnúsdóttir í miðið og Eydís Inga Sigurjónsdóttir fremst en Gunnar heldur í hestinn. Ragnar Gunnarsson er í skræpóttri úlpu en Elva Ösp Gunnarsdóttir fylgist með til hægri. Þar standa líka starfsstúlkurnar Katrín Sigurjónsdóttir fjær og Bára Þorvaldsdóttir nær. Barnið sem Bára leiðir er óþekkt |