Hér bregða þeir á leik, vinirnir Sigurður Bjarnason og
Lárus Ægir Guðmundsson. Báðir hafa þeir átt bú sitt og ból á Skagaströnd, eru
miklir Skagstrendingar og félagar og verið samstíga um margt.
Lárus Ægir fyllir
sjötíu árin í dag, 4. nóvember og eru honum færðar innilegar afmæliskveðjur á
þeim tímamótum.
Þessa mynd af þeim félögum tók Þórður Jónsson 1963, fyrir utan
gamla útibúið sem stóð nokkurn veginn þar sem gangbrautin er yfir Oddagötu
milli skólalóðar og Olís skálans. Útibúið var vernslunarútibú Kaupfélags
Skagstrendinga (KAST).