Kvennaskólinn á Ytri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) var rekinn í þessu húsi.Skólinn var fyrsti kvennaskóli Húnvetninga og hóf starfssemi á þessum stað 1883. Skólinn var í þessu húsi til 1901 þegar hann var fluttur í nýbyggt hús á Blönduósi. Á myndinni eru skólastúlkur ásamt kennurum og gestum einhverntíma á þessu tímabili. Skagfirðingar tóku þátt í rekstrinum meðan skólinn var á Ytri-Ey en hættu þátttöku þegar hann var fluttur til Blönduóss. Við þjóðveginn sunnan við Ytri-Ey er minnismerki um þennan merka skóla. Fyrsta skólastýra skólans var sú merka kona Elín Briem sem var þá nýútskrifuð úr húsmæðrakennaraskóla í Kaupmannahöfn. Hún kenndi og stýrði skólanum frá stofnun til 1895 er hún flutti til Reykjavíkur þar sem hún stofnaði hússtjórnarskóla Reykjavíkur. Elín kom svo aftur norður og tók við stjórn kvennaskólans er hann flutti 1901 til Blönduóss í tvö ár og svo enn á ný 1910 til 1915. Elín fékk riddarakross Hinnar íslensku fálkaorði árið 1921 og var þá önnur af tveim fyrstu konunum sem þann heiður hafa hlotið.
|