Elsti Skagstrendingurinn. |
Þessi mynd var tekin 2009 af Jónínu Valdimarsdóttur sem varð 102 ára 29. nóvember síðast liðinn. Hún er því elsti Skagstrendingurinn í dag og líklega hefur enginn annar Skagstrendingur náð svo háum aldri áður. Jónína, eða Nína á Kárastöðum eins og hún er oft kölluð, hefur búið síðustu 30 árin á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Sæborg. Áður bjó hún á Kárastöðum í áratugi sem ráðskona hjá bræðrunum Kára og Sigurbirni Kristjánssonum. Nína eignaðist tvö börn, Svavar Sigurðsson, sem er látinn fyrir nokkrum árum og Kristínu Ragnhildi Sigurðardóttur sem býr í Tjaldanesi í Dalabyggð. Nína er sæmilega ern og hefur fótaferð þó heyrn og sjón séu verulega farin að gefa sig. Við óskum Jónínu Valdimarsdóttur innilega til hamingju með afmælið. |