Nemendur á framhalds- og háskólastigi sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina eiga rétt á námsstyrk frá Sveitarfélaginu Skagaströnd skv. ákvörðun sveitarstjórnar.
Námsstyrkir til nemenda á framhalds- og háskólastigi nema 30 þús. kr. skólaárið 2022-2023 en styrkirnir eru veittir til jöfnunar á námskostnaði fjarri heimabyggð.
Umsóknum um styrki skal skilað á skagastrond@skagastrond.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins.
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2023
Umsóknir sem berast eftir umsóknarfrest verða ekki teknar til greina.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu sveitarfélagsins og á heimasíðu sveitarfélagsins.
Reglur um styrkina má finna hér.
Umsókn um styrk má finna hér.