Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2017 tók sveitarstjórn Skagastrandar ákvörðun um að veita styrki til nemenda á framhalds- og háskólastigi sem nemur 20 þús. kr. skólaárið 2016-2017 en styrkirnir eru veittir til jöfnunar á námskostnaði fjarri heimabyggð.
Umsóknum um styrki skal skilað til skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 25. apríl 2017.
Umsóknir sem berast eftir umsóknarfrest verða ekki teknar til greina.
Nemendur á framhalds- og háskólastigi
sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina
eiga rétt á umræddum námsstyrk frá Sveitarfélaginu Skagaströnd.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu sveitarfélagsins og á heimasíðunni http://www.skagastrond.is/samthykktir.asp og þar má einnig fá/finna
umsóknareyðublöð.
Reglur um styrkina má finna hér.
Umsókn um styrk má finna hér.
Sveitarstjóri