Okkar krakkar á Landsmóti Samfés

Þessi hressu ungmenni fóru ásamt Giggu á Landsmót Samfés sem haldið var að þessu sinni á Akranesi dagana 4. - 5. október.

Dagskrá Landsmóts Samfés er þríþætt. Unnið er í fjölbreyttum smiðjum þar sem markmiðið er að ungmennin taki það sem þau læra með sér heim og miðli reynslu sinni og þekkingu í sinni félagsmiðstöð. Auk þess er lögð rík áhersla á mikilvægi þess að hitta jafnaldra sína, kynnast nýju fólki og að allir skemmti sér sem best.

Á föstudeginum fór fram lýðræðisleg kosning í Ungmennaráð Samfés. Alls er kosið í 9 kjördæmum þar sem tveir fulltrúar eru kosnir úr hverju kjördæmi, 18 fulltrúa til tveggja ára og 9 fulltrúa til eins árs þannig að fulltrúar Ungmennaráðs Samfés séu 27. Kjörgengir til ungmennaráðs Samfés eru fulltrúar aðildarfélaga á aldrinum 13-16 ára.

Á laugardeginum fór fram smiðjuvinna og endaði með hátíðarkvöldverði og balli á eftir. Á Sunnudeginum var Landsþing ungs fólks sem Ungmennaráð Samfés hefur veg og vanda að því að skipuleggja. Á Landsþinginu fær ungt fólk tækifæri til að tjá sig um hin ýmsu málefni sem þeim eru hugleikin. Í kjölfar Landsþings tekur Ungmennaráð saman niðurstöður og sendir ályktanir á ráðuneyti, sveitarstjórnir, fjölmiðla og aðildarfélaga Samfés.

Það má með sanni segja að unga fólkið okkar var félagsmiðstöðinni sinni til sóma bæði í framkomu og umgengni.

- Gigga