Opnunartími kjörstaða vegna kosningana á laugardaginn 5. júní.

Laugardaginn 5. júní næstkomandi fara fram kosningar um sameiningu Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar.

Rétt til að kjósa hafa allir 18 ára og eldri sem eru á kjörskrá í viðkomandi sveitarfélagi. Kjörskrár liggja frammi á skrifstofum sveitarfélaganna. Einstaklingar geta athugað hvort þeir séu á kjörskrá og hvar þeir eigi að kjósa á heimasíðu Þjóðskrár.

Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki.

Kjörfundir fara fram í hverju sveitarfélagi og verða þeir opnir sem hér segir:

  • Kjörfundur í Blönduósbæ fer fram í norðursal Íþróttamiðstöðvar frá kl. 10 til 22.
  • Kjörfundur í Sveitarfélaginu Skagaströnd fer fram í Fellsborg frá kl. 10 til 22.
  • Kjörfundur í Húnavatnshreppi fer fram á Húnavöllum frá kl. 11 til 19.
  • Kjörfundur í Skagabyggð fer fram í Skagabúð frá kl. 12 til 17.

 

Aðsetur kjörstjórnar verður á viðkomandi kjörstað á kjördag.

 

Talning atkvæða fer fram á sama stað og hefst eftir að öllum kjörstöðum hefur verið lokað. Verða atkvæða talin og úrslit birt í hverju sveitarfélagi og hér á hunvetningur.is

 

Um undirbúning, framkvæmd og frágang sveitarstjórnarkosninga fer eftir lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998.

Kjörstjórnir Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar