Samkvæmt samþykkt um hundahald á Skagaströnd skulu allir hundar og kettir í sveitarfélaginu ormahreinsaðir ár hvert.
Miðvikudagurinn 12. febrúar milli 16:00-18:00 mun Þuríður dýralæknir frá Dýraspítalanum í Glæsibæ sinna ormahreinsun og verður með aðstöðu í áhaldahúsi sveitarfélagsins.
Ormahreinsun er innifalin í árlegu hunda- og kattaleyfisgjaldi. Ekki er nauðsynlegt að panta tíma. Kettir fá gel sem hægt er að bera á heimafyrir, ekki er nauðsynlegt að koma með kettina niður í áhaldahús.
Minnum á að samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins um hunda og ketti skulu allir hundar og kettir í sveitarfélaginu vera skráðir. Skráningarblað má finna á heimasíðu sveitarfélagsins undir eyðublöð. Hægt er að skila inn eyðublaði á skrifstofu sveitarfélagsins eða á netfangið skagastrond@skagastrond.is
Skráð dýr stendur til boða ormahreinsun á vorin endurgjaldslaust. Skráðir hundar eru svo með ábyrgðartryggingu hjá VÍS í gegnum sveitarfélagið.
Ábyrgðartrygging hunda er ætluð til að mæta skaðabótakröfum vegna tjóns sem hundur veldur á þriðja aðila. Þetta geta bæði verið tjón á eignum og líkamstjón og er oft um háar fjárhæðir að tefla.