Pistill frá formanni U.M.F. Fram

 Ágætu foreldrar og forráðamenn

Ég vil fyrir hönd félagsins byrja á að þakka ykkur fyrir samstarfið í haust og vetur. Það hefur að mínu mati verið einstaklega ánægjulegt að fylgjast með hvernig starf félagsins hefur þróast í haust.  Þátttaka barnanna í íþróttastarfinu hefur aldrei verið betri og áhuginn verið að aukast eftir því sem að liðið hefur á. Þjálfararnir Guðmundur Þór og Ágúst Ingi hafa reynst okkur ákaflega vel og hafa náð vel til krakkanna. Takk fyrir það.

Það er því með með ákveðnum trega sem ég tilkynni að Guðmundur Þór kemur ekki til með að starfa fyrir félagið á nýju ári. Persónulegar aðstæður hans leyfðu það ekki. Það er því ljóst að nokkrar breytingar verða nú á vormisseri. Í stað Guðmundar hefur verið ráðinn annar þjálfari, Ingvar Magnússon frá Sauðárkróki. Ingvar er starfandi íþróttakennari og hefur komið að margskonar þjálfun ungmenna á síðastliðnum árum.  Í kjölfar þessa reyndist nauðsynlegt að gera lítilsháttar breytingar á stundartöflu sem  m.a. leiddu til þess að því miður er ekki hægt að hafa íþróttaskóla á miðvikudögum.   Ég bið ykkur að kynna ykkur nýju stundartöfluna.

Um leið og ég þakka Guðmundi vel unnin störf vil ég bjóða Ingvar velkominn til starfa.

Ég vil minna á að enn eiga nokkrir eftir að nálgast skíðafatnaðinn sinn. Hægt er að gera það hjá Róbert og Aðalheiði. Skíðaferðir í Tindastól verða settar á um leið og aðstæður leyfa.

Í lokin vil ég koma þökkum til allra þeirra, einstaklinga og fyrirtækja,  sem styrktu félagið með kaupum á flugeldum og eða styrktu flugeldasýningu nú fyrir áramótin.  Flugeldasalan er megin fjáröflun félagsins og er okkur því gríðarlega mikilvæg. Björgunarsveitinni þakka ég gott samstarf.

 

Kveðja Halldór G. Ólafsson

form U.M.F Fram

 


ÆFINGATAFLA  U.M.F FRAM  VORMISSERI 2007

KL

Mánud.

KL

Þriðjud.

KL

Miðvikud.

KL

Fimmtud.

 

15–16

 

Íþróttask°

1-4 b

 

15–16

 

Íþróttask*

1-4 b

 

15–16

 

Fellur niður

 

15–16

 

Íþróttask°

1-4 b

 

16-17:30

 

 

Frjálsar°

5-10 b

 

16-17

 

Fótbolti*

4-6 b

 

16-17

 

Fótbolti *

4-6 b

 

16-17:30

 

Frjálsar°

5-10 b

 

 

17:30-18:30

 

 

Fótbolti*

7-10b kk

 

17-18

 

Fótbolti*

7-10b kk

 

17 -18

 

Fótbolti*

7-10b kk og kvk

 

 

17:30-18:30

 

Fótbolti*

4-6 b

 

 

 

18-19

 

 

Fótbolti*

7-10b kvk

 

 

 

 

18:30-19:30

 

Fótbolti*

7-10b kvk

 

° = Ingvar                                                                                            * = Ágúst Ingi