Sorphirða - Útboð
Sveitarfélögin Húnaþing vestra, Skagaströnd og Skagabyggð óska eftir tilboðum í verkið:
Sorphirða fyrir heimili, stofnanir, gámastöðvar o.fl. í Húnavatnssýslum 2023-2026
Verkið fellst í tæmingu á sorp- og endurvinnsluílátum við hús í Húnaþingi vestra, Skagaströnd og Skagabyggð, flutningi úrgangs og afsetningu ásamt rekstri gámastöðva á Skagaströnd.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Útboðsgögn fást send frá og með þriðjudeginum 13. júní 2023. Sendið beiðni á tryggvi.thor.logason@efla.is og gefið upp nafn samskiptaaðila í útboði, símanúmer og netfang.
Tilboðum skal skilað til skrifstofu Skagastrandar, Túnbraut 1-3, 545 Skagaströnd, fyrir kl. 11:00 þriðjudaginn 18. júlí 2023 og verða þau opnuð þar.