Þórdísarganga á Spákonufell á laugardaginn

Spákonuarfur efnir til Þórdísargöngu á Spákonufell  laugardaginn 14. ágúst  kl. 10:00. Gangan er tileinkuð Þórdísi spákonu.

Lagt verður af stað frá golfvellinum á Skagaströnd. Að lokinni göngu verður boðið upp á veitingar sem eru innifaldar í verði.

Fararstjóri í göngunni er Ólafur Bernódusson. Á leiðinni mun hann fræða þátttakendur um Þórdísi spákonu og vísa á staði sem tengjast sögu hennar og afrekum.

Þátttökugjald er 2.500 kr. Frítt fyrir 14 ára og yngri. Upplýsingar í síma 861-5089