Spákonuarfur efnir til Þórdísargöngu á Spákonufell laugardaginn 15. ágúst kl. 10:00.
Gangan er tileinkuð Þórdísi spákonu. Lagt verður af stað frá golfvellinum á Skagaströnd. Að lokinni göngu verður boðið upp á veitingar sem eru innifaldar í verði.
Fararstjóri í göngunni er Ólafur Bernódusson. Á leiðinni mun hann fræða þátttakendur um Þórdísi spákonu og vísa á staði sem tengjast sögu hennar og afrekum.
Þátttökugjald er 1.500 kr. en frítt er fyrir 16 ára og yngri. Upplýsingar í síma 861-5089.