Árleg inflúensubólusetning á HSN Blönduósi og Skagaströnd 2021
Bólusett verður eftirfarandi daga, bóka þarf tíma á heilsugæslu í síma 432-4100
21. október Aldraðir/Áhættuhópar Blönduósi og Skagaströnd
22. október Aldraðir/Áhættuhópar Blönduósi
23. október Almennir Blönduósi
Vegna covid-19 eru skjólstæðingar sem mæta á heilsugæslur HSN beðnir um að vera með grímu við komu á heilsugæsluna og hafa hana á sér bæði í biðstofu og annarsstaðar innan stofnunarinnar. Gæta skal að því að mæta á þeim tíma sem bókað er og gæta að sóttvörnum.
Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningu:
Vakin er athygli á því að ofangreindir áhættuhópar eiga rétt á bóluefninu sér að kostnaðarlausu en greiða þarf komugjald skv. reglugerð nr. 225/2018.
Þeir sem eru að velta fyrir sér með bólusetningu gegn lungnabólgu eru beðnir að panta hana um leið og pantað er í inflúensubólusetningu.
Bólusetning gegn inflúensu veitir allt að 60–70% vörn gegn sjúkdómnum. Jafnvel þótt bólusettur einstaklingur fái inflúensu eru allar líkur á því að sjúkdómurinn verði vægari en ef hann væri óbólusettur.
Að gefnu tilefni er minnt á að einstaklinga má bólusetja jafnvel þó inflúensufaraldur sé hafinn því einungis tekur um 1-2 vikur að mynda verndandi mótefni eftir bólusetningu.