Verkfæri fyrir Skagaströnd

Sveitarfélagið Skagaströnd og SSNV atvinnuþróun bjóða til "súpufundar" um atvinnumál, aðstoð og ráðgjöf sem fyrirtækjum og frumkvöðlum stendur til boða.

Tilgangurinn er að kynna þau "verkfæri" sem nota má að ráða til að efla rekstur fyrirtækja sinna eða byggja upp ný.

Fundurinn verður haldinn í Bjarmanesi fimmtudaginn 12. mars kl. 12 til 13. Dagskráin verður sem hér segir og eru dagskrárliðir aðeins fimm mínútur hver að undanskildum umræðum:

  1. Uppbygging á Skagaströnd: Halldór Ólafsson formaður atvinnumálanefndar
  2. Sótt á markað: Sigurður Sigurðarson, markaðs- og atvinnuráðgjafi Sveitarfélagsins Skagastrandar.
  3. Atvinnuþróun: Jón Óskar Pétursson framkvæmdastjóri SSNV
  4. Stuðningur við sérstök verkefni: Líney Árnadóttir, forstöðukona Vinnumálastofnunar á Skagaströnd
  5. Vaxtarsamningur: Hjördís Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vaxtarsamningsins Norðurlands vestra
  6. Menningarráð: Ingibergur Guðmundsson, menningarfulltrúi Norðurlands vestra
  7. Fyrirspurnir og umræður

Á fundinum verðu dreift hagnýtum upplýsingum sem byggðar eru á erindunum