Veðurstofa Skagastrandar hefur stundað ítarlegar og ónákvæmar rannsóknir á vindganginum á Skagaströnd. Á þriggja mánaða löngum athugunartíma kemur í ljós að norðaustanáttin er ekki eins algeng eins og oft er haldið fram. Engu að síður „andar“ oft úr þeirri átt en einnig úr suðri og suðvestri og jafnvel suðaustri. Aðrar áttir koma lítið sem ekkert við sögu.
Sé vindrós þriggja mánaða skoðuð, en þau blóm má sjá með fréttinni, kemur margt skrýtið í ljós. Í janúar og desember hefur annað hvort verið norðaustanátt eða suðvestanátt. Í nóvember voru norðlægar áttir ráðandi.
Hlutfall vindátta á Skagaströnd í nóvember. Algengastar eru norðan-, norðausta-, suðaustan- og sunnanáttir.
Norður 31,5%
Norðaustur 17,8%
Austur 15,5%
Suðaustur 9,6%
Suður 17,2%
Suðvestur 8,0%
Vestur 0,3%
Norðvestur 0,2%
Hlutfall vindátta á Skagaströnd í desember. Norðaustan-, suður- og suðvesturáttirnar eru ráðandi.
Norður 2,3%
Norðaustur 26,2%
Austur 9,4%
Suðaustur 8,9%
Suður 25,6%
Suðvestur 22,7%
Vestur 3,6%
Norðvestur 1,4%
Hlutfall vindátta á Skagaströnd í janúar. Sömu áttir og í desember en til viðbótar austanátt.
Norður 2,2%
Norðaustur 17,7%
Austur 20,8%
Suðaustur 4,7%
Suður 20,0%
Suðvestur 29,5%
Vestur 4,7%
Norðvestur 0,3%
Vísindamenn hafa rannsakað mjög náið vindgang á Skagaströnd og niðurstaða þeirra bendir til að lítil vinddreifing skapist af einhæfu mataræði og þá sérstaklega ofneyslu á súrmeti og skorti á grænfóðri.