FRÉTTASKOT FRÁ SKAGASTRÖND

FJARSKIPTAMÁL Á SKAGASTRÖND

Staða fjarskiptamála hefur verið í brennidepli síðustu vikur eftir að ljósleiðari sem liggur um Hrafná rofnaði í annað skiptið á stuttum tíma sem leiddi til allsherjar fjarskiptarofs í sveitarfélaginu um stund. Sveitarstjóri átti mjög góða og upplýsandi fundi með Fjarskiptastofu og Mílu í vikunni til að fara yfir stöðuna og næstu skref. Á meðan unnið er að varanlegri lausn mun Míla setja upp Starlink tengingu við gervihnött sem tryggir að farsímasamband haldist inni ef að ljósleiðarinn rofnar að nýju . Fundað verður með nýjum sveitarstjórnaráðherra á mánudag til að ræða þessi mál og annað sem brennur á sveitarfélaginu. 

ÚTHLUTUN BYGGÐAKVÓTA Á FISKVEIÐIÁRINU 2024-2025

Það voru mikil vonbrigði þegar Matvælaráðuneytið birti úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2024-2025 en úthlutun til sveitarfélagsins fer úr 170 tonnum vegna 2023-2024 í 55 tonn í nýjustu úthlutun. Sveitarfélagið óskaði skýringa frá ráðuneytinu vegna málsins og fékk þau svör að flækjustig væri verulegt í útreikningum svk. ákvæðum reglugerðar nr. 818/2024. Lagðar eru til grundvallar upplýsingar frá Fiskistofu varðandi afla, aflaheimildir og vinnslu. Í ár er minna til skiptanna sbr. ráðstöfun í 5. gr. reglugerðar nr. 817/2024, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2024/2025 og almanaksárið 2025. Samdráttur í heildarúthlutun er um 1.022 þorskígildistonn milli ára og verða breytingar á magni úthlutaðra þorskígildistonna til einstakra byggðarlaga í samræmi við það. Þessi samdráttur hefur áhrif á flest byggðarlög en þó er almennt að reiknanleg skerðing er meiri í stærri byggðarlögum. Af þeim 3.807 þorskígildistonnum sem til ráðstöfunar koma eru 517 þorskígildistonn sem hreyfast til á grundvelli ákvæða A-liðar 2. gr. um leiðréttingu og óbreytta stöðu í byggðarlagi og 3.290 þorskígildistonnum er ráðstafað skv. reiknireglum A-liðar, B-liðar og C-liðar. Skv. reiknireglum (punktakerfi) reglugerðar nr. 818/2024, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga þá hefði ekki komið byggðakvóti til úthlutunar til Skagastrandar án leiðréttingar. Því er gerð leiðrétting til hækkunar í tilviki Skagastrandar. Þegar viðmiðunarár er valið þá er valið það viðmiðunarár sem kemur hagstæðast út fyrir byggðarlagið hverju sinni og getur viðmiðunarárið því breyst með hliðsjón af útreikningum sbr. reglugerðina. Það sem flækir einnig málið er að Skagaströnd er byggðarlag með yfir 400 íbúum og þá eiga ekki við sömu reglur varðandi skerðingar og í smærri byggðarlögum. Leiðir þetta til þeirrar niðurstöðu sem birt hefur verið að sinni.

Áhugasamir geta kynnt sér efni umræddra reglugerða hér:

Reglugerð nr. 817/2024

Reglugerð nr. 818/2024

ÁSGARÐUR FRAMKVÆMDIR

Framkvæmdir ganga vel og búið er að reka niður allar stálþilsplötu nr. 1 til 104. Búið er að setja upp stagbita við gafl og byrjuð uppsetning á beinum kanti. Búið er að setja upp fjögur hornstög. Framundan er framhald á uppsetning stagbita og endurfylling en skv. verktaka má gera ráð fyrir að vinnu við þilrekstur, uppsetning stagbita, uppsetning á stögum og endurfylling bryggju ljúki um miðjan febrúar. Þá er hægt að hefja vinnu við uppslátt kantbita og lengingu á stálplötum þar sem þarf. Verktaki er búinn að semja við heimamenn vegna vinnu við kantbitana og búið er að smíða viðbótar þybbur að beiðni sveitarfélagsins.

ÞORRABLÓT

Laugardaginn 8. febrúar mun kvenfélagið Eining halda Þorrablót í Fellsborg. Í auglýsingunni kemur fram að boðið verði upp á hlaðborð af þorramat og eitthvað gómsætt fyrir þá sem vilja ekki súrmat. Veislustjóri er Gigga og skemmtiatriði frá leikhóp heimamanna.

Miðasala verður laugardaginn 25. janúar kl 14 - 15 í Fellsborg en enginn posi er í miðasölu.

OPIÐ HÚS NES LISTAMIÐSTÖÐ

Opið Hús verður sunnudaginn 26. jan, kl.16-18 í Nes listamiðstöð á Fjörubraut 8.

KRÍLASPORT

Krílasport verður í íþróttahúsinu kl. 10 á laugardag að vanda.

FARSKÓLINN - FÆRNI Á VINNUMARKAÐI

Á facebook síðu Farskólans er sagt frá því að 22. janúar hafi lokið tilraunasmiðjunni ,,Færni á vinnumarkaði". Smiðjan er samstarfsverkefni Farskólans, Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, Vinnumálastofnunar, Fjölmenntar - fullorðinsfræðslu fatlaðra, fyrirtækja og sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Samtals var smiðjan 180 klukkustundir að lengd; 70 klst í fræðslu hjá Farskólanum og 110 klst í þjálfun á vinnustöðum. Sex nemendur luku náminu og fengu bæði viðurkenningu fra Farskólanum og eins Fagbréf frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og átti Skagaströnd þrjá fulltrúa í hópnum þá Ívan Orra Eiríksson, Pascal Gruenberger og Georg Þór Kristjánsson. Óskum við nemendum innilega til hamingju með áfangann.

 

Sveitarstjóri