Fyrri haustgöngur fara fram föstudaginn 4. september 2015. Seinni haustgöngur fara fram föstudaginn 18.september 2015. Eftirleitir verða 25.september 2015.
Gangnaforingi er Jón Heiðar Jónsson
Réttarstjóri í báðum réttum er Hrönn Árnadóttir
Farið fram Hrafndal og fram í Ármót, vestur Brandaskarð með hreppagirðingu að norðan. Spákonufellsborg að sunnanverðu að Hrafná að Fellsrétt. Undanskilin er skógræktargirðing.
Í borgina leggi eftirtaldir til menn:
Fyrri göngur Seinni göngur
Jón Heiðar Jónsson 2 1
Hallgrímur Hjaltason 2 2
Magnús Guðmannsson 1 1
Guðjón Ingimarsson 1
Jóhann Ásgeirsson 1 1
Vignir Sveinsson 1 1
Rúnar og Hrönn 1 1
Árni Halldór 1 1
Í eftirleit fara fjórir menn. Þær annast Jón Heiðar Jónsson.
Með vísan til 20. greinar fjallskilareglugerðar „Hafi búfjáreigandi engan hæfan mann til fjallskila og getur eigi útvegað hann, skal hann tilkynna hreppsnefnd eða fjallskilastjóra það skriflega fjórum dögum áður en fjallskilin eiga að vinnast, en þessir aðilar útvega mann eða annað sem vantar, svo sem hesta eða fæði, og borgar þá búfjáreigandi allan kostnað, sem af fjallskilum leiðir, án tillits til mats á þeim“
Að öðru leyti en hér greinir fer um skyldur og réttindi manna eftir fjallskilasamþykkt fyrir Austur-Húnavatnssýslu.
Fjallskilanefnd Skagabyggðar, Skagabúð 27.ágúst 2015