Allir reikningar sem útgefnir eru af Sveitarfélaginu Skagaströnd eru nú sendir í pósthólf gjaldenda á island.is sem er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi. Reikningar frá 1. febrúar 2025 birtast í pósthólfinu. Allir lögráða einstaklingar eiga pósthólf á island.is og er farið inn á það með rafrænum skilríkjum.
Lögaðilar sem hafa þann möguleika að taka á móti reikningum í skeytamiðlun, geta óskað eftir því við skrifstofu sveitarfélagsins.
Álagningarseðlar fasteignagjalda munu áfram birtast í pósthólfi island.is.
Launaseðlar starfsmanna sveitarfélagsins munu frá desember 2024 birtast í pósthólfi island.is.