Kjörbúðin opnar fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Kjörbúðin hefur opnað fyrir umsóknir um samfélagsstyrki fyrir árið 2021. Opið verður fyrir umsóknir til 10. apríl næstkomandi og hægt að nálgast umsóknarformið á vefsíðu verslunarinnar. Megin áhersla Kjörbúðarinnar í styrktarmálum er að styðja við verkefni í nærsamfélögum verslunarinnar, en Kjörbúðin rekur 15 verslanir víðsvegar um landið, að því er segir í tilkynningu frá Samkaupum.
„Samfélags ábyrgð er mikilvægur þáttur í allri starfsemi Samkaupa og er samþætt með öllum verslunum fyrirtækisins. Einn af þeim þáttum sem okkur þykir hvað mikilvægastir í þeim efnum er að gefa til baka til samfélagsins og vænlegast þykir okkur að styrkja hin ýmsu samfélagsverkefni," segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdarstjóri verslunarsviðs Samkaupa í tilkynningunni.
Þau verkefni sem samfélagstyrkir Kjörbúðarinnar ná yfir eru:
Opið er fyrir umsóknir á vef Kjörbúðarinnar til 10. apríl. Styrkirnir verða afhentir í Kjörbúðum um miðjan maí. Hægt er að sækja um hér https://kjorbudin.is/um-kjorbudina/saekja-um-styrk/.