Malbikun á Skagaströnd hófst í gær þegar
malbikunarflokkurinn lagði fyrstu fermetrana á útsýnsistaðinn á
Spákonufellshöfða. Næstu daga verður lagt malbik víða um bæinn bæði á plön og
götur. Alls er gert ráð fyrir að malbika 15.700 fermetra. Þar af verða 8.500 fm
nýlagnir á plön og götur og 7.200 fm yfirlagnir á gamalt og lélegt slitlag
gatna. Reiknað er með að malbikunarframkvæmdir standi yfir fram til 15.
september en getur þó farið eftir veðri hvernig gengur.
Íbúar eru beðnir að virða athafnasvæði malbikunarflokksins
og þær lokanir sem nauðsynlegt er að setja bæði í öryggisskyni og til að
malbikið skemmist ekki á meðan það er að kólna. Sömuleiðis er fólk beðið að
leggja ekki bílum í þær götur og á þau svæði sem malbikun er að hefjas á.
Sveitarstjóri