Menningar- og tómstundafulltrúi

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir laust til umsóknar starf Menningar- og tómstundafulltrúa.
Um nýtt starf er ræða með starfshlutfalli 70%. Tilgangur starfsins er að hafa umsjón með menningar- og tómstundastarfi Sveitarfélagsins Skagastrandar í góðu samstarfi við hlutaðeigandi aðila.
Á Skagaströnd er góð aðstaða fyrir íþróttastarf og skýr framtíðarsýn fyrir styrkingu á núverandi tómstundastarfi fyrir alla aldurshópa.
Hér er fjölbreytt og skemmtilegt tækifæri fyrir skipulagðan einstakling til þess að móta nýtt starf í samstarfi við fjölmarga aðila á svæðinu.
Næsti yfirmaður er sveitarstjóri.

Markmið og verkefni:

  • Verkefnavinna og þátttaka í stefnumótun í félags-, menningar-, atvinnu og ferða-, æskulýðs og íþróttamálum
  • Vinnur náið með tómstunda- og menningarmálanefnd og atvinnu- og ferðamálanefnd sveitarfélagsins
  • Umsjón með félagsmiðstöðinni Undirheimum
  • Umsjón með tómstundastarfi aldraðra
  • Er tengiliður sveitarfélagsins við félagasamtök sem eru með skipulagða íþrótta- og tómstundastarfsemi í sveitarfélaginu
  • Vinnur í nánu samstarfi við stjórnendur grunnskóla og íþróttamiðstöðvar
  • Umsjón með ungmennaráði og aðkoma að verkefni um barnvæn sveitarfélög
  • Er tengiliður og umsjónaraðili með heilsueflingu íbúa
  • Verkefnastjórn við undirbúning viðburða á vegum sveitarfélagsins
  • Önnur verkefni á þessu sviði sem viðkomandi er falið af sveitarstjóra

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfinu, gjarnan á sviði kennslu, tómstunda- og félagsmálafræði, eða önnur menntun sem nýtist
  • Góðir forystu-, skipulags- og samskiptahæfileikar
  • Reynsla og þekking af íþrótta- og tómstundastarfi
  • Mikill áhugi á velferð íbúa og hæfni til að eiga samskipti við alla aldurshópa
  • Frumkvæði, jákvætt hugarfar og hugmyndaauðgi

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu.
Umsækjendur af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Þór Ólafsson, starfandi sveitarstjóri.
Upphaf starfs er sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Umsóknum skal skilað á netfangið, sveitarstjori@skagastrond.is
Umsóknarfrestur er til og með 9. ágúst 2024