H 351 |
Adolf J. Berndsen, lengst til hægri, stendur hér við Dodge vörubíl sinn númer H 351. Maðurinn við hlið hans er óþekktur og hefur líklega verið gröfustjóri á gröfunni á myndinni. Adolf átti nokkuð marga vörubíla - H 351 - gegnum tíðina og vann sem vörubifreiðastjóri. Á þessari mynd er hann greinilega í malarflutningum e.t.v. í vegavinnu. Á þessum tíma var vinsælt hjá krökkum að fá að "sitja í" hjá bílstjórunum við vinnu sína. Sú er raunin á þessari mynd því Adolf er með þrjá unga farþega með sér í vinnunni. Það skal tekið fram að þessi mynd var tekin fyrir þann tíma að nokkrum var farið að detta í hug öryggisbelti í bílum. Myndin var sennilega tekin á sjöunda áratugnum í krúsinni/malarnáminu fyrir ofan Spákonufellsrétt. |
Senda upplýsingar um myndina |