Daglegt líf að sumri. |
Myndin er af tveim óþekktum börnum á sumardegi á Skagaströnd. Fyrir aftan þau til vinstri er assistantastofan, sem var íbúðarhús verslunarmannsins sem sá um verslunina við hliðina. Næst assistantastofunni er pakkhúsið og svo verslunarhúsið fremst. Húsið á bak við með svartan gafl er Sæmundsenbúð. Þessi hús stóðu ekki langt frá Einbúanum á svæðinu nálægt því þar sem Skátaskálinn stendur í dag. Evald Hemmert tók myndina en samkvæmt "Byggðin undir Borginni" (bls 118 - 119) var hann verslunarstjóri Höpnhnersverslunar þarna frá 1891 fram yfir 1920 þegar verslunin lagði upp laupana. Sennilega hefur því myndin verið tekin einhverntíma kringum aldamótin 1900. |